top of page

Æfingabúðir í frjálsum 15.-16. júní

SamVest stefnir að því að hafa 2ja daga æfingabúðir fyrir 10 ára og eldri í Borgarnesi 15. - 16. júní nk.

Planið er æfing og skemmtun í bland og svo er endað á stuttu æfingamóti á fimmtudeginum. [endif]

Kristín Halla hefur umsjón með þjálfuninni og einnig höfum við leitað til gestaþjálfara. Auk þess reynum við að fá heimsókn góðra gesta. Meira síðar um það. [if !supportLineBreakNewLine] [endif]

Gróflega er dagskráin þannig:

15. júní

10:00 Mæting í grunnskólann Borgarnesi (þar verður gist) 10:30 Æfingar hefjast á frjálsíþróttavelli Hádegismatur, æfingar, kaffitími, sundferð 17:00 Seinnipartsæfing þar sem við gerum sérstaklega ráð fyrir að 14 ára og eldri geti mætt (þau sem eru ekki þátttakendur í æfingabúðunum, en mæta á þessa æfingu sérstaklega) 19:00 Kvöldmatur, kvöldvaka

16. júní

10:00 Æfingar hefjast á frjálsíþróttavelli að loknum morgunmat Hádegismatur, æfingar, kaffitími og hvíld Kl. 17 eða 17.30 (?) Stutt mót (ca. 1-1,5 klst.) - langstökk, spretthlaup og ein kastgrein Grill ??

Þetta kostar litlar 4000 kr. fyrir þátttakanda. Ef einhver ætlar bara að mæta á samæfingu seinnipart miðvikudagsins, þá kostar það ekkert. Ef einhver ætlar bara að mæta á mótið, á fimmtudeginum - þá kostar það 1000 kr. [if !supportLineBreakNewLine] [endif]

Athugið að á FB-síðu SamVest er slóð á skráningareyðublað - kíkið á það. Það má líka senda póst á bjorgag@gmail.com og spyrjast fyrir, eða heyra í Kristínu Höllu í s. 899 3043.

Með kveðju, SamVest, framkvæmdaráð og undirbúningshópur


Featured Posts
Recent Posts
Archive
Search By Tags
No tags yet.
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page