top of page

Bikarlið SamVest innanhúss 2017

Við í SamVest erum afar stolt yfir því að hafa sent lið til Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir 15 ára og yngri, sem fram fór sunnudaginn 12. mars 2017 í Laugardalshöll. Bikarkeppnin er liðakeppni í frjálsum íþróttum, þar sem keppt er í 7 greinum í piltaflokki og 7 greinum í stúlknaflokki, auk boðhlaups. Keppendur eru 15 ára og yngri, en notuð eru áhöld og viðmið eins og um keppni 15 ára sé að ræða.

Bikarliðið okkar samanstóð af 8 einstaklingum; 4 stelpum og 4 strákum (voru upphaflega 10, en 2 forfölluðust). Keppendur komu að þessu sinni frá HHF (frá Patreksfirði), HSH (úr Stykkishólmi og Grundarfirði), UMSB (úr Borgarfirði) og USK (frá Akranesi). Þjálfari liðsins á mótinu var Ómar Ólafsson, sem nýlega hóf störf sem frjálsíþróttaþjálfari hjá USK, Akranesi.

Í Bikarkeppninni geta liðin mannað greinar með að hámarki 2 greinum á hvern keppanda auk boðhlaups. Við vorum með fámennan hóp sem lagði mikið á sig, en öll hin liðin höfðu fleiri keppendum á að skipa í keppnisgreinarnar.

Af þessum 14 greinum samtals voru keppendur í fjórum greinum að keppa í þeim greinum í allra fyrsta sinn, í fimm greinum voru þátttakendur að bæta persónulegan árangur sinn, við fengum fyrsta sæti í einni grein og annað sæti í einni grein. Í stigakeppni liðanna lenti piltaliðið okkar í 5. sæti af 8 liðum, og stúlknaliðið í 7. sæti af 8 liðum.

Það er mikil vinna að setja saman lið, finna krakka til að taka þátt og fyrir þau að koma sér, af Vestfjörðum, Snæfellsnesi og víðar, til keppni í Laugardalshöll. Við erum afar stolt af þessum krökkum, sem stóðu sig mjög vel og voru samböndum sínum til mikils sóma. Við þökkum foreldrum þeirra og Ómari þjálfara sömuleiðis kærlega fyrir þeirra framlag.

Frá vinstri: Rakel Jóna Bredesen Davíðsdóttir HHF, Birta Sigþórsdóttir HSH, Tinna Guðrún Alexandersdóttir HSH, Kimberly Tómasdóttir USK, Halldór Jökull Ólafsson HHF, Eggert Þorsteinsson HHF, Daníel Fannar Einarsson UMSB og Martin Máni Geirdal Kárason HSH. Lengst til hægri er Ómar Ólafsson USK sem var þjálfari liðsins á mótinu.


Featured Posts
Recent Posts
Archive
Search By Tags
No tags yet.
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page